Upplýsingatæknisérfræðingur / IT Application Senior Analyst at Alcoa in Reyðarfjörður

  • Company: Alcoa
  • Location: Iceland, Reyðarfjörður
  • Job type: full time
  • Workplace: onsite
  • Posted: 2026-10-27

Apply for this role

All open roles at Alcoa

Job description

Mótaðu framtíðina Sem starfsmaður Alcoa gegnir þú mikilvægu hlutverki í að skapa verðmæti og nýta tækifæri til árangurs. Hjá okkur er sérhver starfsmaður liðsmaður, hugmyndasmiður og þátttakandi í að móta framtíðina. Upplýsingatæknisérfræðingur (Iðnstýringar) Við leitum að öflugum einstaklingi til starfa við forritun, þróun og rekstur iðnstýringa. Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni tengd sjálfvirkni, PLC-forritun og skjámyndakerfum fyrir framleiðslu. Við vinnum aðallega með Rockwell Automation / Allen-Bradley búnað og lausnir og er reynsla af því umhverfi mikill kostur. Helstu verkefni og ábyrgð Forritun, þróun og viðhald PLC-iðnstýringa Þróun og viðhald HMI- og SCADA-skjámyndakerfa Hönnun, prófanir og innleiðing nýrra lausna og virkni Bilanagreining, rekstur og endurbætur á stýri- og sjálfvirknikerfum Umsjón með högun, skjölun og stöðlun iðnstýrikerfa Þátttaka í og verkefnastjórnun tæknilegra verkefna og umbóta Greining og úrvinnsla gagna úr framleiðslukerfum Tæknileg ráðgjöf og stuðningur við notendur Samstarf við framleiðslu, viðhald og aðrar tæknigreinar Menntunar- og hæfniskröfur Menntun eða reynsla á sviði sjálfvirkni, rafmagns-, tölvu- eða iðntækni eða sambærilegu sviði Þekking eða reynsla af PLC-forritun og iðnstýringum Reynsla af Rockwell Automation / Allen-Bradley búnaði og hugbúnaði er kostur Þekking á iðnaðarnetum og samskiptum stýrikerfa er kostur Góð hæfni til bilanagreiningar og lausnar tæknilegra vandamála Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð og góð hæfni til teymisvinnu Góð samskiptafærni og þjónustulund Góð íslensku- og enskukunnátta Alcoa Fjarðaál er stór og lifandi vinnustaður sem aldrei sefur. Saman sköpum við útflutningsverðmæti á öruggan og ábyrgan hátt, allan sólarhringinn, alla daga ársins. Alcoa Fjarðaál býður samkeppnishæf laun og minni vinnuskyldu en almennt þekkist og er aðbúnaður starfsmanna til fyrirmyndar. Öryggi og heilbrigði eru ávallt forgangsmál á vinnustaðnum og tækifæri til þjálfunar, menntunar og starfsþróunar eru mikil. Gildi Alcoa eru heilindi, árangur, umhyggja og hugrekki. Frekari upplýsingar um starfið veitir Anna Kristmundsdóttir, sérfræðingur í ráðningum í gegnum netfangið anna.kristmundsdottir@alcoa.com . Við erum gildisdrifin, knúin framtíðarsýn og sameinuð af tilgangi okkar að nýta tækifærin til að ná árangri. Skuldbindingar okkar varðandi þátttöku, fjölbreytni og jöfnuð fela í sér að bjóða upp á trausta vinnustaði þar sem öryggi og virðing eru í heiðri höfð og allir einstaklingar eru án aðgreiningar, lausir við mismunun, einelti og áreitni og að vinnustaðir okkar endurspegli fjölbreytileika samfélaganna sem við störfum í. Í samræmi við jafnréttisstefnu Alcoa Fjarðaáls og lög nr. 150/2020 eru einstaklingar af öllum kynjum hvattir til að sækja um. Hægt er að sækja um starfið á Alcoa.is . Umsóknarfrestur er til og með 17. nóvember ______________________________________________________________________________ IT Application Senior Analyst (Industrial Automation) We are looking for a skilled and motivated individual to join our team, working with the programming, development, and operation of industrial control systems. The role includes a variety of tasks related to automation, PLC programming, and HMI/SCADA systems used in our production processes. We mainly work with Rockwell Automation / Allen-Bradley equipment and solutions, and experience with these systems is a strong advantage. Key Responsibilities Programming, development, and maintenance of PLC-based industrial control systems Development and maintenance of HMI and SCADA systems Design, testing, and implementation of new solutions and functionality Troubleshooting, operation, and improvement of control and automation systems Configuration management, documentation, and standardization of industrial control systems Participation in and management of technical projects and improvement initiatives Analysis and processing of data from production systems Technical advice and support for users Collaboration with production, ma

Upplýsingatæknisérfræðingur / IT Application Senior Analyst on JobPost.