Shipping and Logistics Coordinator at JBT Marel in Gardabaer
- Company: JBT Marel
- Location: IS - Gardabaer
- Job type: full time
- Workplace: onsite
- Posted: 2026-10-30
Job description
JBT Marel leitar að kraftmiklum og jákvæðum liðsfélaga í teymi sem sér um sendingar og flutninga varahluta. Teymið sinnir fjölbreyttum verkefnum tengt varahlutum og sér um allar hraðsendingar til viðskiptavina. Allt nýtt starfsfólk fær viðeigandi þjálfun. Við bjóðum upp á fyrsta flokks starfsumhverfi þar sem öryggi, góð liðsheild, samvinna og stöðugar umbætur eru í fyrirrúmi. Um er að ræða tímabundna stöðu til 1 árs, með möguleika á framhaldi. Helstu verkefni Afgreiðsla varahlutapantana Pökkun varahluta Samskipti við innri viðskiptavini og flutningsaðila Reikningagerð og samþykkt reikninga Undirbúningur útflutningsskjala Skráning sendinga Hæfniskröfur Reynsla af útflutningi og/eða tollamálum er skilyrði Þekking og reynsla af SAP er mikill kostur Mjög góð almenn tölvukunnátta Mjög góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í töluðu og rituðu máli Góð samskiptafærni og áhugi á teymisvinnu Samviskusemi, metnaður og góð öryggisvitund Jákvæð og lausnamiðuð vinnubrögð Áhugi á stöðugum umbótum Við hvetjum öll áhugasöm, óháð kyni og bakgrunni, til að sækja um starfið. Umsóknarfrestur er til og með 8. nóvember 2026. Unnið verður úr umsóknum jafnóðum og þær berast. Nánari upplýsingar um starfið veitir Hreinn Ingi Örnólfsson, Hreinn.Ornolfsson@jbtmarel.com . Sótt er um starfið á heimasíðu JBT Marel.
Shipping and Logistics Coordinator on JobPost.